Elvan bloggar

Elvan

02.02.2007 09:18:55 / elva

Glossyday

Úffff já, ha bara allt brjál að gera um helgina.  Dagurinn í dag er nú svo fullbókaður að ég veit ekki hvort ég meiki það sko... á að vera í skólanum til kl.12, við sleppum venjulega svona um kl.11 en neinei kennarinn búinn að tilkynna það að við nýtum allan tímann.  Á svo að vera mætt á starfsdag kl. 12.30 til 17 og svo mætt upp í Breiðholt nánast öll spikk´n span kl. 18 þar sem verður drukkið og djammað og dansað og sungið fram yfir miðnætti.  Gamla konan ég er vön að taka mér fegurðarblund fyrir djamm en það næst ekki í dag svo ég verð að fara EXTRA varlega í drykkjuna í kvöld.  Við skveezes ætlum að vera með bollu sem á að vera eitthvað ægilega góð, verð að viðurkenna að hún hljómar ekki vel (flórsykur og frosnir ávextir) en hún er örugglega voða góð... er ekki allt áfengt gott?

Svo er það matarklúbbur á saturday hjá Árnesi þar sem Mjalla sveitafrænka ætlar að mæta með gítarinn og hún kann yfir 100 fylleríislög og hefur beðið okkur um að vera hávær (ekki að það þurfi að biðja neitt sérstaklega um það:$ ) Ég verð líka að vera spök þar því ég má ekki finna vott af þynnku hvorki á laugardag né sunnudag.  Ég bara verð að vera hress fyrir ritgerðarskrif um helgina þar sem ég á mætingu hjá leiðbeinanda á mánudag og miðað við það sem ég hef fengið komment á frá öðrum þá þarf ég að breyta aðeins hugmyndinni á bak við ritgerðina :cry:  ég er nú samt ekki tilbúin að sleppa því að fá mér í glas fyrir námið 8)


» 16 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 09:46:35 / elva

Sorpa

Ég var að spá, eins og áður hefur komið fram er ég að fá moggann til mín þennan mánuðinn og við það bara fyllist karfan mín strax af blöðum og blaðarusli (ekki að ég sé óánægð með að fá moggann, þvert á móti).  Ég hef nú reynt eins samviskusamlega og ég get að safna þessu saman og fara með í Sorpu... skal þó viðurkenna hér með að ég hef tvisvar sinnum látið fullan poka af dagblöðum gossa hérna í ruslið hjá mér enda hef ég ekkert geymslupláss fyrir marga poka af blöðum.  Anyways það sem ég var að spá er það, að mig langar að láta minn skerf af hendi í umhverfisátakinu með því að fara með blöðin í endurvinnslu en finnst bara stundum of langt að keyra alla leið upp í Sorpu við Bryggjuhverfið fyrir einn poka af dagblöðum... já það er búið að taka blaðagámana sem voru í endurvinnslunni hérna í Súðarvoginum!  Svo mér datt í hug sú hugmynd hvort ekki væri hægt að borgin setti eina blaðaruslatunnu (kannski græna á litinn eða eitthvað, af því það er svo umhverfisvænt) við hvert hús þannig að maður gæti bara sett blöðin beint í þá tunnu sem væri svo tæmd sérstaklega í hverri viku af borginni og farið með í endurvinnsluna.  Ég er nokkuð viss um að með þessu myndi mikil aukning verða í endurvinnslu dagblaða.  Úti í London var það nú þannig að hvert heimili fékk tvo (græna) kassa og í þá átti að setja dagblöð og dósir/plast/gler (ekkert endurvinnslugjald af því) og svo á þriðjudögum voru þessir kassar tæmdir, þannig að maður passaði sig bara að segja kassana út á mánudagskvöldum svo þeir yrðu tæmdir. 

Ég allavega held að þetta gæti verið góð hugmynd (þyrfti kannski að útfæra hana aðeins betur eins og t.d. í sambandi við hversu margar blaðatunnur þyrfti við blokkir og svona) ég bara veit ekki hvert ég skal snúa mér til að koma þessu á framfæri :$


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 09:17:53 / elva

Guten tag

Skriftir eru hafnar.  Já það kom að því að ég settist niður og fór að skrifa... hætt að lesa heimildir í bili, er komin með nóg af heimildum í ca. tvo kafla ritgerðarinnar og nú er bara að skrifa og skrifa og skrifa.  Hélt reyndar að þetta yrði ekkert mál af því að ritgerðin ætti að vera svo stutt en nei nei, ég skrifaði heilar tvær blaðsíður á klukkutíma í gær og á kannski eftir að skrifa um 2-4 blaðsíður í viðbót út frá þeim heimildum sem ég er búin að afla mér svo það er alveg hryllilega mikið eftir eitthvað og ég þarf að auka eitthvað við þetta efni.  Það vantar bara algjörlega heimildir... ohhh ég hef aldrei á ævinni gert heimildaritgerð held ég, ef ég hef hins vegar einhvern tíma gert slíka ritgerð er svo langt síðan að ég man ekkert hvernig það skal gert!!!  En þetta hlýtur að hafast.  Er að bíða eftir að fá að hitta leiðbeinandann til að vita hvort ég sé á algjörum villigötum varðandi það sem komð er eða hvort þetta sé nokkuð í lagi. 

En yfir í skemmtilegri mál sem aðrir en bara ég hafa áhuga á... enn um handboltann.  Leikurinn í gær... þetta er ástæðan fyrir því að ég stressast alltaf upp þegar við erum nokkrum mörkum yfir meirihluta leikja, við eigum hættu á að missa það niður.  Reyndar ætla ég nú að skrifa hluta af þessu á dómgæsluna, Pólverjarnir voru rosalega tuddalegir en fengu lítið af brottrekstrum á meðan við vorum manni færri svona um það bil hálfan leikinn.  Ég hef ekki fundið neina þörf á að deila á dómarann á þessu móti hingað til en þeir fóru yfir strikið í gær... það bara verður að segjast.  Ég hef samt enn trú á því að við fljúgum inn í 8 liða úrslitin en hvað gerist þar verður svo bara að koma í ljós, ég ætla allavega að fylgjast með öllum leikjunum.  Er að vinna aukavaktir um  helgina og ætla að reyna að koma upp einhverjum stemmara fyrir þessu þarna in das arbejde. 

Annars er það svo skírn á morgun hjá Ingu slingu og sætustu dóttur hennar,  get ekki beðið eftir að vita hvað barnið skal heita.  Ég var búin að ákveða hvað ég ætlaði að gefa henni og fór út um allt að leita að þessu en virtist hvergi vera til, nema bara í einni búð sem ég rak óvart augun í og datt í hug að athuga.  Júbb gripurinn var til þar og var bara einn eftir... svo heppin ég... og þær mæðgur að fá svona fína gjöf :haha: ég er allavega mjög ánægð með mig og þessi gjafakaup 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 14:52:03 / elva

olé olé olé

Áttum góðan dag í gær og sýndum þessa heimsklassa takta sem ég var að tala um í pistlinum í gær. Var heima hjá ma&pa að horfa á leikinn og svona nettur æsingur hjá okkur systrum.  Ef okkur gengur of vel þá verð ég alltaf svo ægilega stressuð um að við missum niður forskotið og leikurinn tapist, ég kláraði held ég alla puttana á mér í nagi svo mikið fékk þetta á mig.  En djö... það verður að segja að þessi leikur var bara brill snill :haha:  Reyndar kom pabbi heim þegar staðan var 18-8 fyrir Íslandi og hann trúði því ekki og fór að tala um mútur og fleira ósiðlegt sem enginn sannur íþróttamaður myndi láta hafa sig útí þegar snertir leiki, eða mér finnst allavega ósennilegt að einhverjum tækist að sannfæra heilt lið um 15-16 manns um það að tapa vísvitandi einhverjum leik.  Við vorum bara einfaldlega betri helmingurinn í þessari viðureign. Og stemmningin á vellinum o boy o boy þarna var meiri stemmning en á leikjunum hérna á Íslandi fyrir rétt rúmri viku!  Nú er bara að krossa fingur og vonast eftir áframhaldandi snilldarleikjum og góðri markvörslu Íslendinga og þá gætum við farið alla leið :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 12:16:04 / elva

Sorg og gleði

Ó svo sorglegt... leikurinn í gær, maður fékk nú eiginlega bara illt í hjartað við að horfa á þessa hörmulegu útreið sem við Íslendingar fengum. Mín skoðun eins og sjálfsagt margra annarra var að við áttum alveg að geta farið létt með Úkraínumennina en svona getur gerst, stundum bara ganga ekki hlutirnir upp eins og þeir eiga að gera. Ég hef líka fulla trú á því að þeir geti tekið Frakkana, á góðum degi erum við með heimsklassa lið. Hins vegar finnst mér við verða að passa að lofsyngja ekki einn leikmann of mikið og setja þannig pressu á hann sem verður til þess að hann kenni sjálfum sér um tapið í gær. Það geta allir átt slæman leik, shit happens, en það fer meira fyrir því þegar það er einn aðalmaðurinn í liðinu. En jæja nóg um handboltann í bili, bíð bara spennt eftir leiknum í kvöld, ætla að styðja landsliðið í blíðu og stríðu og veit að við tökum þetta (vonandi). Ég er alltaf svo heppin, ég fékk símhringingu um daginn frá Morgunblaðinu þar sem mér var boðin ókeypis "áskrift " í einn mánuð, engar kvaðir eða neitt. Ég þakkaði pent fyrir og er svo glöð að vera aftur farin að geta lesið moggann á morgnana, ég er ekkert lítið búin að sakna þess. Mér finnst bara ekki eins að lesa Fréttablaðið og Blaðið, fyrir utan að þau koma nú bara svona þegar þeim hentar best. Það er samt einn galli við þessa Morgunblaðsgleði mína. Ég dett gjörsamlega í lestur þess og í morgun sat ég í klukkutíma og las moggann og borðaði morgunmat sem er náttúrulega allt of langur tími í ljósi þess að ég þarf að vera dugleg í ritgerðarsmíði. Ekki að þessi bloggskrif mín taki eitthvað minni tíma...

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 09:17:30 / elva

Perrahverfi

Ég fæ alveg ómögulega skilið hvað fær fólk (menn) til að eiga samræði við litlar stelpur/stráka.  Ég er reyndar með þá kenningu að það er einhver sjúkleiki búinn að hreiðra um sig í heilabúi viðkomandi aðila og þeir geri sér ekki grein fyrir því að þessi litlu saklausu börn séu algerlega laus við allan líkamlegan (og andlegan) þroska.  Ég meina common þetta er náttúrulega bara viðbjóðslegt :cry: og það sem gerðist á mánudaginn var bara í gangi allt í kringum mig þar sem ég var í sakleysi mínu heima að lesa dóma um kynferðisbrotamál til að nota í ritgerðinni minni.  Karfavogur, Langholtsvegur, Goðheimar og Rauðalækur, ég fór nú bara að hugsa um alla krakkana sem búa í götunni minni og það eru ekkert fá börn þarna, allavega nokkur stykki í hverju húsi.   Þetta hverfi hefur samt því miður átt við þetta vandamál að stríða, einhverjir perrar ganga lausir og hremma börn. 

Ég man t.d. þegar ég var lítil eða svona kannski 11 ára eitthvað svollis þá vorum við vöruð við að vera ein á gangi um hverfið því Steingrímur Njálsson byggi þarna og aldrei að vita hvenær honum dytti í hug að láta til skarar skríða.  Seinna komst ég reyndar að því að hann væri spenntari fyrir litlum drengjum en svona stelpum eins og mér en ég skal samt viðurkenna það að húsið þar sem sagt var að hann byggi still gives me the creep


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 10:53:14 / elva

Leynivinur

Jahááá tvær færslur á viku lágmarksskilyrði fyrir því að vera linkuð hjá Fíu píu sem er vinsælasti bloggarinn sem ég þekki held ég... bloggaði samt bara einu sinni í síðustu viku, en common fær maður ekki stundum undanþágu, smá byrjunarörðugleikar í gangi og svonna 8)

Það er að byrja svona leynivinavika í vinnunni á föstudaginn og ég er búin að reyna að láta mér detta eitthvað í hug sem ég get gert fyrir vininn minn.  Ég er nú nógu hugmyndasnauð þegar ég er að kaupa gjafir handa vinum og vandamönnum svona almennt, hvað þá þegar ég þarf að fara að gefa einhverjum úr vinnunni eitthvað smotterí úffff.  Maður má reyndar líka vera góður á einhvern annan hátt en að vera að gefa gjafir en ég er nú ekki svo góð að eðlisfari að ég eigi eitthvað auðveldara með það hehe:klikk: Nei djók, ég er svo mikið gæðablóð að ég er að spá í að láta skína í það þessar tvær vikur sem leynivinavikan stendur yfir.  Slúttið verður svo á starfsdaginn þar sem maður gefur svona endanlega gjöf í staffapartýinu um kvöldið, þetta gæti allt orðið mjög fróðlegt, þ.e.a.s. þetta partý allavega, burtséð frá því hvort leynivinadæmið verði eitthvað fróðlegt.  Svo þarf ég líka að giska á það hver er leynivinurinn minn og ég hef bara ekki guðmund um það hver það gæti verið, það er kannski spurning um að bíða eftir að þetta byrji og reyna að átta sig á því út frá gjöfum eða góðmennsku viðkomandi :)

Svo er það þetta með hróskassann, hafiði séð Legally blond 2, aha that´s what I am talking about... hann er hrikalega bleikur og krúttlegur með blómum og fiðrildum og svo eiga allir að hrósa hver öðrum! Jebb þetta er líka í gangi í vinnunni hjá mér, það er sem sagt móralsátak í gangi.  Eins hallærislegt og mér finnst þetta þá átti ég nú þátt í nokkrum hrósum sem fóru í kassann fyrir síðustu upplesningu.  Ég hélt reyndar að það yrði it, hróskassinn yrði tekinn úr umferð og notaður sem skraut í hillunum en nei nei, auðvitað höldum við áfram að hrósa hvert öðru... hrós fyrir því :lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 12:31:40 / elva

I´m back

Já er eitthvað að láta mig dreyma um að ég verði eitthvað duglegri að blogga núna en í haust þegar ég lofaði auknum færslum.

Lífið er sem sagt farið að ganga sinn vanagang aftur, ég sest á skólabekk og er alveg jafn löt og fyrr við að læra.  Hið árlega janúarátak er hafið með tilheyrandi ávaxta- og grænmetisáti og heimsóknum í ræktina.  Takmarkið er að minnsta kosti að losna við 6 kg og svona 5% í fitu allt meira en það er rosa bónus.  Það hefur oftast verið þörf á svona aðhaldi en nú er nauðsyn því ég hef tekið að mér veislustjórn í brúðkaupi ársins á komandi vordögum :)  Svo er maður bara vonandi að fara að klára þetta blessaða nám á árinu 2007 og aldrei að vita nema maður skelli sér bara á sólarströnd af því tilefni... þá hef ég líka enn meiri ástæðu til að viðhalda átakinu svo ég geti nú látið sjá mig á bikini. 

Ég er að horfa hérna í kringum mig í stofunni hjá mér og ómg hvað það er eitthvað hvítt og tómlegt eftir að ég tók niður jólaskrautið og það er samt ekki eins og ég hafi verið með neitt allt of mikið af skrauti þetta árið.  Leyfi nú seríunum í gluggunum að vera aðeins áfram, mér finnst það svo ægilega kósý eitthvað. 

Ætla ekki að lofa neinu en á samt kannski eftir að halda áfram þessu bloggi í þetta skiptið :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 12:43:50 / elva

Alive

Hva... finnst ykkur eitthvað langt síðan ég skrifaði eitthvað hérna síðast??? sKil ekkert í ykkur, ég sem komst varla inn í vefstjórnina þar sem ég mundi ekki leyniorðið. En Arnar minn þú hefur nú bara verið að standa þig ágætlega í þessu í fjarveru minni :)´ Brjálað að gera hjá mér þessa dagana. Vinna, vinna, líkamsrækt, líkamsrækt, djamma og djamma... jamm ég er eitthvað að lifna við í djamminu. Held ég sé búin að standa mig betur í september en í allt sumar. Nú er Elvan nebblega búin að finna það út að bjórfyllerí á ekki við mig þar sem rúmlega og uppköst fylgja gjarnan slíkri drykkju. Nú er það sterka tímabilið aftur and it´s goin good :) enda eins gott, held það séu að verða allar helgar í október planaðar og þá erum við að tala um bæði föstudags- og laugardagskvöld... eins gott að ég komst í tollinn í Leifsstöð um síðustu helgi :) Jebb Elvan skrapp á gamlar heimaslóðir í London um helgina, reyndar alltof stutt ferð, bara frá föstudegi til sunnudags en þetta var bara alveg fullkomið, ein skemmtilegasta stutta ferð sem ég hef farið. Fengum óska veður eða sól og hita, komumst á Oxford street, á markaði, í Primark í Hammersmith, ég hitti London familíuna og Láru mína, fór út að borða og reglulega í lyftingar (kaldur bjór í hitanum... just perfect). Fórum annars á stað á laugardagskvöldinu sem var mjög sérstakur, Elvan gróf upp upplýsingar um hann einhversstaðar og það var samþykkt að fara þangað í óvissuferð. Fékk mér krókódíl í forrétt sem var algjört lostæti og ég get ekki beðið eftir að fá mér aftur einhvern tíma svona krókódíl og svo fékk ég mér kengúru í aðalrétt sem var svona allt í lagi, erfitt að komast með tærnar þar sem krókódíllinn hafði hælana svo kengúran sló svona almennt ekkert sérstaklega í gegn, en var samt allt í lagi. Svo fengu nokkrir heimsókn læknisins með tilheyrandi drykkju og spádómi og ég veit ekki hvað... Frábær staður, við vorum þarna í 5 tíma og skemmtum okkur vel. Ef ykkur langar á hann næst þegar þið farið til London heitir hann Archipelago mmmm... jæja ætla að halda áfram að vinna, ákvað að láta vita að ég er á lífi og reyni að blogga reglulega :)

» 19 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 13:08:24 / elva

Laugardagur til lukku og pickles í krukku

Fín helgi framundan.  Byrjar reyndar ekki skemmtilega í dag, en þá er verið að kistuleggja langaafa minn heitinn sem kvaddi mjög skyndilega algjörlega fyrir aldur fram (það finnst mér allavega, þó hann hafi verið orðinn 91 árs, því hann var alltaf svo hress).  Þetta verður erfitt en maður verður alltaf að reyna að líta á björtu hliðarnar við svona áföll, það er alltaf einhversstaðar einhver björt hlið.  En allavega nóg um það.

Á morgun verður markaðsdagur til að byrja með, en þá er ég að fara með nokkrum kellum á grænmetismarkaðinn í Mosfellsdalnum og hlakka mikið til, hef ekki komið þangað í tvö ár og ég vona að picklesið sem við keyptum alltaf þá verði enn á boðstólnum, ætla sko að láta múttu gefa mér eins og eina slíka dollu.  Svo er það bröns hjá Ollu frænku.  Rauða torgið (vissi ekki að það héti þessu ósvo dónalega nafni - en þetta er sem sagt torgið á horni Langholtsvegar og Álfheima og þar er staðsett rauð stytta sem ég ímynda mér að sé tilefni nafngiftarinnar) en þetta Rauða torg er sem sagt næsti viðkomustaður á þessum degi en þar á að halda einhvern markað líka (ég elska sem sagt markaði - eitt það skemmtilegasta sem ég geri) og svo er það bara að fara heim og pússa sig upp fyrir brúðkaup dagsins.  Ég elska líka brúðkaup svo ég reikna með mjög skemmtilegum degi. 

Stefnan er síðan tekin vestur á sunnudag á ættarslóðir en ég verð að sjá hvað heilsan leyfir, síðast þegar þetta var reynt eftir eitthvað djamm hjá mér voru gerð nokkur neyðarstopp á leiðinni og það var ekki mjög skemmtilegt... hlógum nú samt að því um daginn og ég líka en djö.... "$#%$&%$%&/$%/&/ leið mér illa þá!!!! 8|


» 20 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 16:56:18 / elva

Mexicana

Fór í mexikanskt matarboð hjá Kristínu afmælisbarni í gærkvöldi og ómg hvað það var gott 8| byrjaði kvöldið náttúrulega á því að missa mig algjörlega í forréttinn og borða á mig gat ásamt því að drekka hátt í hálfa hvítvínsflösku.  Mexikanskt lasagna með öllu tilheyrandi í aðalrétt, og hátíðardesert á eftir mmmm þetta var allt svo gott og ég hin ofursadda eftir forréttinn stækkaði gatið á maganum enn meira þegar ég hélt áfram að troða í mig af öllu kræsingunum fram eftir öllu kvöldi! Þetta var svo næs svona á miðvikudagskvöldi að vera í matarboði með hvítvín og bjór... og engir timburmenn að banka uppá í dag, þvílíkur lúxus :D Nú langar mig bara í meira hvítvín og meiri bjór og kósýheit.

Horfði annars á úrslitin í Rockstar þegar ég kom heim, vááá hvað ég er forvitin að vita hvað gekk á með Dilönu... ætla sko að horfa á þetta í kvöld.  Verð bara að passa mig að missa ekki út úr mér neitt með úrslitin því Lára Klára er að koma í heimsókn að horfa á þetta með mér og hún veit ekki hver (eða kannski hverjir úúúúú) detta (eða duttu) út. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 11:16:19 / elva

So much to do about nothing

Viðburðarríkir dagar að baki. 

Fyrsti klúbbur Smjattpattanna tókst svona líka rosalega vel á fimmtudagskvöldið og voða gaman, myndatakan tókst nú reyndar eitthvað hálffurðulega en það verður bara reynt aftur síðar. 

Svo var það partý á föstudagskvöldið, ég kíkti þangað en hin duglega ég ekki að djamma, var samt mjög gaman að hitta aftur gamla vinnufélaga og fá smá slúður og svona :)

Menningarnótt á laugardaginn, ég fór í fyrsta skipti í bæinn til að njóta menningarinnar seinnipartinn á laugardag.  Veðrið náttúrulega geggjað og þetta var hin fínasta dægradvöl að rölta um og skoða mannlíf og menningu Reykjavíkurborgar.  Um kvöldið byrjaði ég svo í afmæli hjá Guðrúnu Völu og var það rosalega fínt, Elísabet stóð sig þar með eindæmum vel í hárstrekkingum (sléttun) en mér finnst náttúrulega svo æðislegt að vera með krullur að ég lét ekki slétta mig.  Förinni var svo heitið til Sigrúnar í innflutnings- afmælispartý í nýju fínu íbúðina hennar.  Þar var allt fljótandi í áfengi og ef ég hefði ekki verið búin að lofa mér sem bílstjóri foreldra minna seinna sama kvöld hefði ég sjálfsagt hrunið í það.  Útsýnið af svölunum hjá henni er geðveikt og maður sá flugeldasýninguna í allri sinni stuttu dýrð af svölunum í Grafarvoginum.  Mjög skemmtilegt og hin duglega ég enn ekki að djúsa. 

Sunnudagurinn var tekinn í garðrækt, gluggaþvott og girðinganiðurrif heima og það er bara að verða nokkuð fínt þarna, eða svona, bakgarðurinn þarfnast ennþá einhverra grænna handa.  Svo kom Áman heim í gærkvöldi og ég fór að sjálfsögðu með á the Aeropuerto að sækja litlu systir mússimússi ;)

Hasta la vista, þangað til næst :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 10:25:08 / elva

Plummingproblem

Helgin tekin með stæl og ekki neitt gert... nema reyndar að vinna síðustu vaktirnar mínar í NEXT, jebb, því sumarævintýri er lokið og ég hlakka svo til þegar ég átta mig á því að ég er ekki að vinna allar helgar.  Veit reyndar ekki alveg hvenær það verður sem ég átta mig á því en það eru allar helgar fram í lok september planaðar að einhverju leyti :)

Annars er ég svo hrædd um að mig vanti plummara heim til að kíkja á pípulagnirnar hjá mér.  Í þeim málum er allt í ruglinu.  Ef ég vaska upp í stóra eldhúsvaskinum, fyllist sá minni af vatni og ef maður þvær sér um hendurnar í baðvaskinum freyðir uppúr niðurfallinu og svo í morgun toppaði það allt saman þegar ég í sakleysi mínu og flýti fór í sturtu en það bara flæddi allt fram í hol!!!  #%$#%&#$%$#%$#%/#()&$&% ansans vandræði... nenni nú ekki að standa í svona veseni en ef þið vitið um góðan plummara, ungan, ódýran, myndarlegan og á lausu then let me know :haha: 


» 25 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 15:14:41 / elva

Djók

Auglýsingin um gervigrasið farin...

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 15:13:53 / elva

In the line of fire

Þessi auglýsing hérna fyrir ofan um ekkert gervigras... hvað þýðir hún?  Hvar verður ekkert gervigras?  Í Laugardalnum?  Það er allavega nóg um framkvæmdir þar núna, fór í göngutúr í gær og þar er bara allt á öðrum endanum.  Og svo er vináttulandsleikur á þriðjudaginn (á hann kannski að vera annarsstaðar?) væri til í að sjá hann, Ísland-Spánn, mmm fullt af sætum kroppum :)  Ohhh mig langar svo í nammi :$

Það er loksins eitthvað pínkuoggupons að lifna yfir fasteignamarkaðnum aftur og ég sit hérna alla daga kófsveitt að reyna að átta mig á málunum, enda komin í nýtt starf innan sölunnar og hef ekki náð að læra neitt of vel á þetta... challenging but fun :)  Mig langar ennþá í nammi...

ÉG er svo biluð, ég var úti í London í fyrra þegar hryðjuverkaárásirnar voru gerðar og mér fannst þetta eiginlega bara soldið spennandi og svo núna í dag þegar einhver voðaleg hryðjuverkaógn stafar í UK og USA þá langar mig eiginlega að vera á faraldsfæti og vera föst á Heathrow eða eitthvað svona spennandi, vera í midten af því sem er að gerast í heimsfréttunum... mjög heillandi.  Mér fannst samt ekkert sérstaklega skemmtilegt þegar ég var að koma frá London í febrúar og það var extra security control og ég var ein og fór beint í röð um leið og ég mætti á Heathrow og var svo bara pikkföst þar þangað til kallað var upp í vélina og allir sem voru á leið til Íslands þurftu að ryðjast fram fyrir og hlaupa í gegnum security gateið til að ná vélinni (rosalega gagnlegt þetta extra security dæmi hjá þeim, öllum hleypt í flýti í gegn af því að röðin gekk svo hægt hjá þeim vegna aukins eftirlits!!!!) Allavega, ég fékk reyndar Láru til að standa í röðinni fyrir mig áður en hún fór svo ég gat keypt mér tvö stykki bækur á tilboði :)  Langar aðeins minna í nammi núna, en langar rosalega til London og kaupa mér bækur á tilboði mmmm 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6